Opið efni frá Öruggara nám - aðgengilegt öllum og deilanlegt með skólastarfsfólki. Engin innskráning þarf.
Þegar Öruggara nám metur kennslulausn fær hún einkunn á ABCD-kvarða. Flokkurinn endurspeglar heildarmyndina - hversu mikil persónuverndaráhætta lausnin skapar, hvernig hún uppfyllir kröfur GDPR og íslenskra persónuverndarlaga, og hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar til að nota hana í skólasamhengi.
D-flokkur merkir að lausnin sé með litla persónuverndaráhættu og hentar almennt til notkunar án sérstakra aðgæslna. A-flokkur merkir að lausnin kalli á ítarlega frekari athugun, formleg ferli og hugsanlega takmarkaða notkun.
Flokkurinn er mat á stöðunni þegar greining fór fram - lausnir uppfærast og lagaumhverfið breytist. Öruggara nám endurskoðar greiningar reglulega til að tryggja að þær endurspegli raunverulega stöðu.
Áður en ný kennslulausn er tekin í notkun í leik- eða grunnskóla er gott að fara yfir nokkrar grundvallarspurningar.
Ef óvissa er um einhvern þessara þátta er Öruggara nám til að hjálpa.
Smelltu á leiðbeiningar til að opna þær.
Hvernig nemendur skrá sig inn í kennslulausn ræður því hvaða upplýsingar um þá verða til, hver hefur stjórn á þeim og hvað verður um þær síðar. Hér er flokkunin sem Öruggara nám notar. Flokkar aðganga nemenda eru í röð eftir því hve mikla stjórn skólinn hefur á gögnunum, frá mestri til minnstrar.
Fjórir flokkar, frá mestri stjórn skólans á gögnum til minnstrar. Eigin aðgangur nemanda (flokkur 4) er áhættusamari en flokkarnir á undan.
| Flokkur | Hvernig nemandi skráir sig inn | Stjórn skólans á gögnum |
|---|---|---|
| 1. Engin innskráning | Kóði og gælunafn fyrir eina lotu | Engin gögn eiga að verða eftir |
| 2. Skólaaðgangur | Aðgangur frá sveitarfélaginu (Google eða Microsoft) | Full |
| 3. Aðgangur stofnaður af kennara | Notandi eða bekkjarkóði sem kennari býr til í lausninni | Að hluta, í gegnum kennarann |
| 4. Eigin aðgangur nemanda | Eigið netfang nemanda eða forráðamanns | Engin |
Nemendur slá inn kóða og gælunafn sem gildir aðeins fyrir eina lotu, t.d. í spurningaleik.
Nemandi skráir sig inn með aðgangi sem sveitarfélagið úthlutar. Þetta er traustasti kosturinn: sveitarfélagið stýrir aðganginum, getur lokað honum og eytt gögnum, og vinnslusamningur er til staðar við þjónustuaðilann.
Kennarinn býr til notendur, eða bekkjarkóða sem nemendur tengjast með, beint í lausninni.
3a - með raunnafni: Lausnin geymir nafn nemandans. Lausnin þarf þá að hafa verið metin og sveitarfélagið að hafa heimilað hana.
3b - án raunnafns (dulnefni): Nemandi fær t.d. „Nemandi7“ eða „Blár-refur“.
Nemandi stofnar aðgang með eigin netfangi eða netfangi forráðamanns. Þetta er áhættusamara en flokkarnir á undan:
Biddu nemendur ekki um að stofna eigin aðgang nema sveitarfélagið hafi heimilað það sérstaklega.
Ekki er mælt með að kennari noti einkaaðgang í vinnutengd verkefni. Aðgangur kennara er annars eðlis en aðgangur nemanda, því áhætturnar tengjast fullorðnum notanda en ekki barni. Hann fellur því utan röðunarinnar hér að ofan.
Hnappurinn „Sign in with Google“ eða „Sign in with Microsoft“ þýðir ekki að lausnin hafi verið metin eða sé heimiluð. Þegar þú eða nemandi skráið ykkur inn í aðra lausn með skólaaðganginum fær sú lausn upplýsingar úr aðganginum, a.m.k. nafn og netfang og stundum meira.
Gátlistar, sniðmát og leiðbeiningar til niðurhals - aðgengilegt öllum án innskráningar.
Óska eftir greiningu - opið öllum, engin innskráning.